Verk & Málun sérhæfir sig í alhliða viðhaldi og endurbótum á húsnæði.

Við einblínum sérstaklega á þakskipti og þakviðgerðir, allar tegundir múrverks og málningarvinnu.

Lögð er rík áhersla á vönduð og traust vinnubrögð, ásamt sanngjarnri og skynsamlegri verðlagningu.

Heiðarleg vinna í hverju verki

Okkar þjónusta

Alhliða viðhald

Við sinnum alhliða viðhaldi á húsnæði, bæði innan- og utanhúss.

Baðherbergi

Við tökum að okkur endurnýjun og uppsetningu baðherbergja, með áherslu á breytingar á sturtum til að auðvelda aðgengi. Við leggjum ríka áherslu á vandaðan frágang.

Múrverk

Við sinnum öllu múrverki, þar á meðal filtun og viðgerðum, með vönduðum frágangi og traustri fagmennsku.

Þök

Við tökum að okkur þakskipti, viðhald og viðgerðir, með áherslu á öruggar og varanlegar lausnir fyrir allar tegundir þaka. Við leggjum ríka áherslu á rétt efnisval til að tryggja langlífi og ábyrgjumst öll okkar þakskipti í 6 ár.

Einfalt ferli fyrir alla